Við kappkostum að veita öllum viðskiptavinum fulla athygli, stórum sem smáum, og viljum rækta sambandið. Loforð okkar eru raunhæf, og við stöndum við þau.
Þarfir viðskiptavinarins eru í fyrirrúmi. Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt kostur er, hvort sem um er að ræða einfaldar eða flóknari tilboðsbeiðnir.
Við berum virðingu fyrir störfum, skoðunum og tíma hvert annars, og gleymum því aldrei að við erum í sama liði.
Vinnustaðurinn á að vera okkur til sóma hvað snyrtimensku áhrærir og viðskiptavinum notalegur.
Vandamál fela í sér tækifæri og við viljum gera enn betur og við viljum leysa þau þannig að sambandið við viðskiptavininn styrkist og batni.

HÖNNUN OG FRAMLEIÐSLA
Hjá Prentmet Odda starfa sérfræðingar í hönnun og uppsetningu og framleiðslu prentverka. Sérþekking í prentun nær yfir allt sem lítur að kilju- og tímaritaprentun, pappírsgerð, litanotkun og myndvinnslu.
Miklu máli skiptir fyrir bestu útkomu á prentverki að frágangur og vistun prentskjala sé réttur. Því bjóðum við viðskiptavini sem koma með fullhönnuð verk til prentunar, hvort sem það á við kiljur, bæklinga eða umbúðir, að kynna sér vel, áður en vinna hefst við hönnun, hvernig ganga skal frá skjölum til prentunar.
ÞJÓNUSTA
Prentmet Oddi getur tekið að sér að koma vörunum þínum til dreifingaraðila þegar dreifa á víða um land, til Póstsins eða annarra flutningsaðila. Einnig getum við keyrt út vörur á höfuðborgarsvæðið sé þess óskað sérstaklega.
Nánari upplýsingar gefa viðskiptastjórar.
