Umhverfisstefna Prentmet Odda ehf. — Svansvottuð framleiðsla.
Prentmet Oddi er Svansvottað fyrirtæki og leggur áherslu á sjálfbæra framleiðslu og ábyrga umgengni við umhverfið. Umhverfisstefna fyrirtækisins miðar að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif af starfseminni og stuðla að sjálfbærri þróun í prentþjónustu á Íslandi.
Prentmet Oddi hefur verið handhafi Svansvottunarinnar — opinbers Norræns umhverfismerkis — síðan Oddi hf. hlaut vottun árið 2009. Prentmet hlaut vottun 2011 og útibú fyrirtækisins 2012. Svansvottunin staðfestir að framleiðsla fyrirtækisins uppfyllir ströngustu kröfur um lágmörkun neikvæðra áhrifa á umhverfi og heilsu. Vottunin er endurskoðuð reglulega.
Öll hráefni sem notuð eru í framleiðslu uppfylla kröfur Svansvottunar. Pappír er FSC- eða PEFC-vottaður og kemur úr sjálfbærum skógum. Blek og önnur efni eru laus við skaðleg efni. Fyrirtækið skráir efnanotkun og metur reglulega hvort hægt sé að nota umhverfisvænni valkosti.
Úrgangur er flokkaður á öllum starfsstöðvum. Pappírsúrgangur, málmar, plast og önnur efni eru endurunnin þar sem hægt er. Spilliefnum er fargað á viðurkenndan hátt.
Framleiðsla er rekin að mestu á endurnýjanlegri orku úr íslenskum virkjunum. Fyrirtækið mælir orkunotkun og leitar leiða til frekari orkusparnaðar, t.d. með orkusparandi tækjum og bættri einangrun.
Umhverfisstefna er endurskoðuð árlega og uppfærð eftir þörfum. Framkvæmdastjóri og umhverfisstjóri bera ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgni. Starfsfólk er frætt reglulega um umhverfismál og umbætur. Fyrirtækið tekur þátt í umhverfisúttektum og uppfyllir kröfur Svansvottunar í hverri endurskoðun.
Þessi stefna er hluti af innra gæðakerfi Prentmet Odda ehf. og er endurskoðuð reglulega. Síðast uppfært janúar 2025. Fyrirspurnir má senda á sala@prentmetoddi.is eða hringja í 5 600 600.