Bjóðum mestu breidd landsins við framleiðslu á kartonlausnum.
Við hjá Prentmet Odda aðstoðum þig við að þróa og framleiða umhverfisvænar kartonlausnir, sem eru sérsniðnar að þörfum þinnar vöru. Til að gera umbúðirnar enn veglegri getum við upphleypt og fólíuþrykkt þær.
Þessar lausnir koma oftast í staðinn fyrir áprentaðar plastlausnir eða límmiða sem erfitt er að endurvinna. Kartonlausnirnar okkar eru aftur á móti FSC vottaðar, 100% endurvinnanlegar og niðurbrjótanlegar. Sömuleiðis eru þær veglegar og geta frekar stuðlað að því að varan þín verði fyrir valinu hjá neytandanum.
Við þjónustum meginþorra af kröfuhörðustu matvæla-, lyfja- og snyrtivöruframleiðendum landsins með slíkar vörur og höfum gert það í áratugi með góðum árangri.
Við forstillum atvinnugreinina svo þú fáir hraðara og nákvæmara tilboð.