Útibú Prentmet Odda á Akureyri í nýju og glæsilegu eigin húsnæði
Það eru spennandi tímamót hjá Prentmet Odda á Akureyri en útibú okkar hefur nú flutt í glæsilegt, eigið húsnæði að Furuvöllum 5.
Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum okkar í nýjum og björtum húsakynnum, þar sem við munum áfram leggja áherslu á persónulega þjónustu, fagmennsku og vandaðar prentlausnir.
Við bjóðum bæði nýja og núverandi viðskiptavini hjartanlega velkomna til okkar að Furuvöllum 5 á Akureyri.



