Það eru spennandi tímar hjá Prentmet Odda! Um mánaðamótin tók fyrirtækið við rekstri Héraðsprents á Egilsstöðum og við bjóðum því frábæran hóp nýrra samstarfsfélaga velkominn í Prentmet Odda-fjölskylduna.
Karl Emil Guðmundsson sem er grafískur hönnuður að mennt hefur tekið við starfi útibússtjóra Prentmet Odda á Egilsstöðum. Með honum starfar öflugur hópur sem býr yfir dýrmætri reynslu og þekkingu:
- Ingunn Anna Þráinsdóttir – grafískur hönnuður
- Sara Lind Magnúsdóttir - aðstoðarmanneskja
- Líney Petra Hugadóttir – grafískur hönnuður
- Rósmundur Magnússon – prentari
Fyrsta vikan er nú að baki og hefur gengið afar vel. Nýju samstarfsfélagarnir okkar hafa tekið breytingunum með jákvæðni og krafti og aðlögun að starfsháttum Prentmet Odda gengur vel.
Við erum virkilega ánægð með að fá þennan öfluga hóp til liðs við okkur og hlökkum til samstarfsins. Það er alltaf ánægjulegt þegar hópurinn stækkar og ný reynsla, þekking og ferskir kraftar bætast í hópinn.



