Hjónin Ingibjörg Steinunn og Guðmundur Ragnar, eigendur Prentmet Odda, eru stolt og þakklát fyrir að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026.
Jafnvægisvogin er mikilvægt hreyfiaflsverkefni á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), sem hefur það að markmiði að stuðla að jafnari kynjahlutföllum í æðstu stjórnunarstöðum íslensks atvinnulífs og samfélagsins.
Markmiðið er skýrt: Að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40% í efsta lagi stjórnunar.
Við trúum því að fjölbreytileiki, jafnrétti og ólík sjónarhorn styrki bæði vinnustaði og ákvarðanatöku.
Viðurkenningin er okkur hvatning til að halda áfram á sömu braut, því jafnrétti skapast ekki af sjálfu sér. Það er árangur meðvitaðra ákvarðana og sameiginlegrar vinnu.
Við þökkum FKA fyrir viðurkenninguna!



