Prentmet Oddi fjárfesti nýlega í 521 fm húsnæði fyrir útibú félagsins á Akureyri. Um er að ræða neðri hæðina á Furuvöllum 5 sem hýsti áður rekstur Ormsson á Akureyri. Reksturinn mun því halda óbreyttri mynd í nýju húsnæði en gefa frekari möguleika á að lagera ýmsar umbúðalausnir og þar með lækka sendingarkostnað og auka afhendingaröryggi fyrir fyrirtæki á Norðurlandi.
Sömuleiðis gekk félagið frá kaupum á 945 fm vöruhúsi í Hafnarfirði með um 10 metra lofthæð í hæsta punkti. Um er að ræða Straumhellu 12 og mun reksturinn geta lagerað þar yfir 1.500 vörubretti. Húsnæðið kemur því til með að styðja við öran vöxt félagsins á bylgjukössum og öðrum innfluttum umbúðum.
Í dag starfar félagið í alls 8.766 fm, þ.e. 8.045 fm á höfuðborgarsvæðinu, 521 fm á Akureyri og 200 fm á Selfossi.
Samhliða örum vexti félagsins hefur félagið fjárfest í tveimur nýjum sendibílum. Annars vegar 2026 árgerð af 8 bretta Renault Master kassabíl og hins vegar 2025 árgerð af Mercedes-Benz Citan fyrir minni sendingar.
Nú samanstendur bílafloti félagsins af 2 kassabílum og 8 öðrum sendibílum fyrir litlar og meðalstórar sendingar.



