Jafnlaunastefna Prentmet Odda ehf.
Prentmet Oddi er skuldbundið til þess að tryggja jöfn laun og sömu kjör fyrir jafn verðmæt störf, óháð kyni, aldri, kynhneigð, þjóðerni eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum. Fyrirtækið starfar í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og hefur innleitt jafnlaunakerfi samkvæmt staðlinum ÍST 85.
Prentmet Oddi gætir fyllsta jafnréttis við ákvörðun launa og annarra starfskjara. Allt starfsfólk skulu fá greidd jöfn laun og njóta sömu starfskjara fyrir jafnverðmæt störf. Skilgreining Prentmet Odda á launajafnrétti styðst við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
Í 6. gr. Jafnréttislaga er eftirfarandi skilgreining:
“Konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni. Skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismunun. Starfsfólki skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef það kýs að gera svo.”
Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Prentmet Oddi sig til þess að viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur ÍST 85:2012 staðalsins. Prentmet Oddi hefur innleitt verklag og skilgreint launaviðmið til að tryggja að starfsfólk fái greitt fyrir störf sín út frá verðmæti starfa óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum.
Framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála ber ábyrgð á jafnlaunakerfi Prentmet Odda og að það standist lög varðandi jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Til þess að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Prentmet Oddi sig til að:
Þessi stefna er hluti af innra gæðakerfi Prentmet Odda ehf. og er endurskoðuð reglulega. Síðast uppfært janúar 2025. Fyrirspurnir má senda á sala@prentmetoddi.is eða hringja í 5 600 600.
Samþykkt í framkvæmdastjórn
Reykjavík 16. mars 2026