Starfsmannastefna Prentmet Odda ehf.
Starfsfólk er mikilvægasta auðlind Prentmet Odda. Starfsmannastefna fyrirtækisins leggur áherslu á jákvætt og heilbrigt vinnuumhverfi, jafnrétti, faglega þróun og vellíðan starfsfólks. Starfsmannastefnan er leiðarljós í mannauðsstjórnun og nær til allra starfsmanna á öllum starfsstöðvum.
Þessi stefna er hluti af innra gæðakerfi Prentmet Odda ehf. og er endurskoðuð reglulega. Síðast uppfært janúar 2025. Fyrirspurnir má senda á sala@prentmetoddi.is eða hringja í 5 600 600.